þriðjudagur, nóvember 29, 2011

Venjulegur þriðjudagur í vesturbænum

Undanfarið hef ég pælt mikið í lífinu og tilverunni, rótleysið sem svo oft nær tökum á mér hefur náð nýjum hæðum. Einfaldleikinn heillar mig alltaf enn meir, ég sakna svo daganna á Helgamagrastræti þar sem við Magga tókum strætó í skólann og gengum heim - eða tókum heillangan rúnt í strætó. Ég slappa aldrei eins vel af og þegar ég fer til frænku og allra gemlinganna á ströndinni, nálægðin við fjöllin og sjóinn hafa svo róandi áhrif á verkefnahlaðan háskólastarfsmanninn. Það er eitthvað róandi við það að keyra yfir Holtavörðuheiðina að vetri til, í svarta myrkri og hlusta á tónlist. Sama hversu þreyttur maður er þegar maður fer af stað, það eitt að hlaupa út úr bílnum í Staðarskála hressir, kætir og bætir. En á hinn veginn þá er lika svo notalegt að geta rölt á kaffihús og fengið sér latte, fara yfir nokkur verkefni og fylgjast með sérkennilegu fólki sem gerir gáfumannlega hluti eða þykist að minnsta kosti vera að því. Það er líka svo róandi að keyra aftur og aftur niður Laugarveginn og skoða fólkið (og gluggana), stoppa hjá vinkonu og láta dæluna ganga - keyra svo aftur heim. Eða setjast hjá vinkonu og sötra bjór, taka taxa heim og rölta svo að sækja bílinn daginn eftir. Eða bara hlusta á umferðina fyrir utan gluggann - umferðina sem vekur mann á morgnana þegar maður hefur sofið yfir sig. Sumir hafa sagt við mig að það að ég leiti alltaf út fyrir borgarmörkin sé bara flótti, flótti frá aðstæðum sem ég ræð ekki við og mun ekki ráða við. Suma daga er ég sammála því, aðra ekki. Flesta daga vil ég líta svo að landsbyggðarástin sé bara sjálfsbjargarviðleitni, því einhver veginn trúi ég því að lífið sé einfaldara út á landi, tíminn sé lengur að líða og nálægðin við samfélagið meiri. Hugsanlega yrði ég að hætta innkaupaferðum á náttbuxnum en í flestum bæjarfélögum er hægt að fá latte - og ef ekki þá er tiltölulega stuttur akstur eftir latte. Pælingar á pælingar ofan. Svo langar mig líka til Stokkhólms, eða í verslunarferð til Boston.

föstudagur, október 07, 2011

... og 2011 er langt komið

Kannski les þetta enginn lengur - en ég kíki sjálf hérna regulega og minni mig á hvað ég var að hugsa á hverjum tíma. Nú þegar ég skrifaði síðast var 2010 að renna sitt skeið - það var erfitt, skemmtilegt og skrítið ár. Sama á kannski við um 2011 en á annan hátt.. áramótaheitin mín voru að klára MA ritgerðina, klára kennsluréttindin, hætta að reykja og fara í ræktina. Í stuttu máli sagt þá kláraði ég blessuðu ritgerðina mína í júní, kláraði kennsluréttindin í júní, planið er að hætta að reykja í næstu viku og ég hef farið nokkrum sinnum í ræktina. Stóra spurningin í dag er samt - hvað ætla ég að verða þegar ég verð stór. Síðastliðið ár hef ég verið í frekar miklu limbói, ég á mér drauma en ég fæ mig ekki til að framkvæma þá - veit ekki hvað málið er. Ég get ekki valið á milli þess sem mig langar... það er þrennt. Fyrsti kostur er að finna mér vinnu í Reykjavík, búa á Hagamelnum um ókomna tíð, styðja litla KRinginn og verða alvöru Reykvíkingur. Vinnan þarf að vera skemmtileg og tengd því sem ég hef lært, nú hef ég kennt í HÍ frá 2006 og núna langar mig að breyta til. Mig langar í 8 tíma vinnudag fyrir góð laun og eiga góðan frítíma. Annars kostur að flytja út á land í eitthvað minna bæjarfélag en Reykjavík - Akureyrin kemur alltaf sterkt inn en þá þarf góða vinnu. Ég fer ekki neitt nema fyrir góða stöðu sem er samt pínu fáránlegt því ég er ekki með neitt sérstaka stöðu í dag - vinn á skrifstofu í hálfu starfi og kenni í hálfu starfi. Mig langar í eitt skemmtilegt starf. Ég ímynda mér að tempóið sé allt miklu þægilegra úti á landi. Þriðji kostur er að fara til útlanda í doktorsnám, sem er í raun og veru ekki kostur eins og staðan er núna. Það er á langtímaplaninu. Mig langar samt ekki í doktorsnám með annarri vinnu, mig langar í doktorsnám sem ég get stundað eins og vinnu. Lífið getur verið flókið.....