sunnudagur, ágúst 13, 2006
....
Merkilegt hvað fólk er misjafnt. Lífið er skrítið. Alltaf finnst mér jafn merkilegt þegar sumir þykjast ekkert vita um eigin framkomu og láta eins og englar, jú það gæti eyðilagt þeirra mannorð...???? Sumir þurfa líka að fá að vita að aðrir hafi séð til þeirra? Er leikurinn gerður til þess, ég spyr? Á að stilla fólki upp við vegg og láta það taka afstöðu? Ekki fyrir mig, ég veit hverjir mínir vinir eru.
---
Ég hef mikið velt því fyrir mér í sumar hverja ég telji til minna vina og hverja ekki, ég hef áttað mig á því að vinir mínir eru fáir en góðir. Við Sunnefa áttum virkilega góða tíma saman og gátum rætt um allt á milli himins og jarðar, vinir eru þeir sem þú getur talað við þegar þú þarft sama hversu langt er síðan síðast. Það eru vinir.
---
Ég var að koma heim frá Guðrúnu, hún var að halda upp á síðbúið afmæli í dag. Hva, það er ekki nema rétt rúmur mánuður síðan hún átti afmæli. Ég er að spá í að halda upp á afmælið mitt í september þegar Sunnefa kemur heim og María er búin að eiga afmæli, bjóða nokkrum heim í smá skemmtó.. kannski Singstar eða eitthvað? Sjáum til, ætli ég verði ekki of upptekin til þess, kannski held ég bara upp á þrítugs afmælið mitt. Þá verð ég alla vega búin í skólanum og ekki í prófatörn á afmælinu...
---
En svona er lífið
Gerast áskrifandi að:
Birta ummæli (Atom)
7 ummæli:
Góðir vinir eru bestir! En hey, fæ ég að koma í Singstar.... I love it you know.
Getum við kannski farið að hittast aðeins meira bráðum, svona til að hita upp fyrir skólann.
Að sjálfsögðu kemur þú í Singstar, meistarinn sjálfur- hvað annað?
Við verðum að hittast eitthvað yfir góðum bolla fljótlega- svona fjarsamband hentar mér illa :)
ég er til í singstar! ég er ógó góð að syngja U know..hahaha
takk fyrir stutta en góða samveru í gær,luuuv
ég kem sko 100% í singstar partý :) Hlakka til...
Love u og sjáumst eftir nokkra daga...
Hæhæ skvísí;) Fannst so fyndið að rekast á síðuna þína og varð nú að kvitta fyrir komuna;D
Hæhæ
Hvað segirðu gott ? Ég skrapp norður um helgina í afmælið hennar Helgi, bara gaman að hitta þær. Var einmitt að hugsa hvort við gætum ekki planað svona hitting eins og síðast, hafa hann bara lengri svo við getum spjallað almennilega :)
Kv. Kidda
blogga dududu blogga dududud
Skrifa ummæli