sunnudagur, mars 25, 2007

Ballerína og Blönduós

Á síðasta mánudag þurftum við mægður að hafa hraðar hendur eftir skóla. María var að fara á generalprufu fyrir ballettsýninguna sem plönuð var á þriðjudag. Við vorum nokkuð tímanlega þegar við komum heim, María fékk sér smá að borða og ég skellti snúðnum margfræga í hárið á henni og allt í einu vorum við nánast of seinar! Við gáfum okkur samt tíma til að skella einni mynd af sætustu ballerínunni með töskuna sína á leiðinni út
Generalprufan gekk vel, og þegar skvísan kom heim fór hún að sýna mömmu sporin sem stóru stelpurnar voru með í sínum dansi. Hún kunni þau bara nokkuð vel. En á þriðjudaginn var stóri dagurinn. Lovísa fékk að koma með okkur og horfa á Maríu dansa, hún þurfti að mæta svo snemma í leikhúsið að mamma, pabbi og Lovísa fengu sér smá göngutúr um Kringluna- keyptu smá nammi og svona notalegheit. En svo kom að því sýningin byrjaði, við vorum mörg í mínum hópi en lítill hluti dansaði í einu. Hér er prinsessan að bíða eftir því að röðin komi að mér.

Svo mikil dúlla

En svo kom að því að minn hópur fór að dansa. Ég var mjög einbeitt allan tímann með tunguna út í kinn :)

Með hendur á mjöðmum
Eins og svanir :)

Síðasta staðan

Eftir sýninguna fórum við öll saman á McÓðal og fengum okkur að borða og svo var bara kominn tími til að fara heim að sofa eftir góðan dag. Síðan hefur vikan bara verið ansi annasöm, Nonni fór af landinu á miðvikudag og ég fattaði ekki fyrr en þá að ég ætti eftir að redda "sækingu" fyrir Maríu hans daga. Mamma sótti hana fyrir mig svo það reddaðist, en við vorum ekki komnar heim fyrr en rúmlega átta báða dagana. Helgarfríið var því velþegið þegar það loks kom. Á föstudaginn var að sjálfsögðu pizza hjá Maju eins og venjulega, við sátum lengi frameftir hjá þeim eins og venjulega :)

Í gær var svo á planinu að fara í síðasta ballettímann en María nennti ekki. Svo fórum við í Hafnarfjörðinn. María var eftir hjá Begga og við Maja sóttum Martin og fórum með hann í fermingu til Ragnars Freys hennar Hildar frænku. Eftir ferminguna brunaði ég í bæinn og hitti nokkrar Blönduósskvísur, það rosa gaman. Mikið hlegið og haft gaman af. Við fengum okkur að borða á Vegamótum og sátum og spjölluðum. Takk fyrir frábært kvöld, verðum að gera þetta oftar! Við tókum nokkrar myndir því til sönnunar að við höfðum hisst

Kidda sem vinnur hjá Kaupþing í Reykjavík og er að læra viðskiptafræði á Bifröst með vinnunni og Helga er iðjuþjálfi á Blönduósi og sveitarstjórnarkona með meiru.

Svo er það Hugrún sem grunnskólakennari, tónlistarkennari og oraganisti og býr Skagaströnd. Svo er það hún Erla, við vorum saman í grunnskóla að 6.bekk og svo í háskóla en hún er uppeldis- og menntunarfræðingur eins og minns. Erla býr hvergi eins og er :) og ég er bara ég.

Mig er farið að þyrsta í páskafrí, það er samt svo mikið eftir að gera... ég á eftir að henda heilum kassa á bókum og greinum inn í EndNote. 5 verkefni bíða þess að verða unnin, 12 verkefni bíða yfirferðar og skila. Inn á milli þessa þarf ég að safna gögnum, taka viðtöl og fara í þátttökuathuganir... og þar allra leiðinlegasta - að afrita viðtölin og þátttökuathuganirnar. Auk þess þarf ég að lesa slatta og vinna en ég var að bæta við mig vinnu á skrifstofunni. Jafnréttisáætlun deildarinnar er þar í smíðum, bara skemmtilegt verkefni.

En ný vinnuvika byrjar ekki skemmtilega, kl. 8.30 í fyrrmálið á að taka síðasta endajaxlinn úr frúnni og þar sem tíminn er svona snemma þá verð ég að vera "edrú".. kvíður vel fyrir því. Svo allir leggist á bæn og hugsið til mín frá 8.30-9.30! Danke

Og svo bara í lokin...


Which Trainspotting Character Are You?

10 ummæli:

Nafnlaus sagði...

æi hvað hún er sæt í balletinum :) Ef ég væri þarna á svæðinu færi ég nú létt með að afrita fyrir þig eins og nokkur viðtöl tíhí. Hlakka til að sjá þig eftir nokkra daga, gangi þér vel í fyrramálið!

Ásdís Ýr sagði...

Ég hlakka líka ekkert smá til að hitta þig líka um næstu helgi, smútsí smús :) Það væri sko næs ef þú værir hérna hahaha- við gætum svo endað á kaffibolla, like old days seint að kveldi!

Nafnlaus sagði...

Takk sömuleiðis fyrir góðan hitting, gaman að sjá myndir :-) Skvísan þín er rosa sæt í balletinum, getur sko verið stolt af henni. Vonandi sjáumst við fljótlega....

Nafnlaus sagði...

Takk fyrir músina mína um daginn, hún var alveg himinsæl og talaði ekki um annað í marga daga á eftir;) Held það endi með því að hún fari bara í ballett í haust;)

Ásdís Ýr sagði...

@Helga- Þetta var rosalega gaman. Hlakka til að fá þig í fötlunarfræðina :)

@Anna Rut- bara minnsta málið, hún var eins og engill! Það væri sterkur leikur að skella þeim saman í ballet næsta haust??

Hugrún Sif sagði...

Takk kærlega fyrir skemmtilegt kvöld. Leiðinlegt að ná ekki matnum en það verður bara NÆST, jamm segi næst því það er alveg must að við endurtökum þetta reglulega :)

Nafnlaus sagði...

Já rosalega væri það sniðugt;) Við þurfum að skoða það;)

Ásdís Ýr sagði...

@Hugrún- Sömuleiðis takk! Alveg sammála því, við verðum að gera þetta reglulega. Þú nærð matnum næst :)

@Anna Rut- setjum þetta í minnisbankann og tékkum á þessu í haust. Ballettskólinn er úti á Eiðistorgi svo það er ekki langt að fara!

Nafnlaus sagði...

Algjör dúlla :)
Takk fyrir síðast, já og gaman að sjá þig í dag líka :) 2 á einni viku, þetta fer batnandi:)
Pössum okkur á því að endurtaka þetta sem fyrst, látum ekki líða of langt á milli.
En núna er það stærðfræðin :)
kv. Kidda

Nafnlaus sagði...

Hæ Ásdís mín...
Það hefði nú verið gaman að vera með ykkur skvísunum þetta kvöld, enn kannski næst. Vonandi er allt gott hjá ykkur, ekkert smá flott stelpa sem þú átt.
Væri svo gaman að sjá þig í Köben..
Bestu kveðjur Valdis