þriðjudagur, maí 15, 2007

Það sem ég hef lært síðustu daga

  • Það er ekkert leiðinlegt að keyra landshorna á milli ef maður hefur góða tónlist, syngur hátt og keyrir um á eðalkagga
  • Það er ekki sjálfsagt að smábörn viti ekki að maður heilsar ekki rollum með "hæ", þær eiga það til að stanga mann
  • Valla hefur "alið upp" víðsýna og klára krakka í MA
  • Það er hægt að halda stjórnarmeirihluta þótt maður fái minnihluta atkvæða í Alþingiskosningum
  • Það er heljarinnar heilapúl að skrifa kafladrög í MA ritgerð
  • Ég er komin langt á eftir áætlun varðandi skólann
  • Mín biður meiri og skemmtilegri vinna þegar ég hef lokið verkefnum annarinnar
  • Það er hægt að rífast á msn
  • Mig langar í frí

En annars er ég bara að læra þessa dagana, milli þess sem ég rökræði við kennara í FSu á moggablogginu mínu um fóstureyðingar Ég ætla að vera í fríi með Maríu á fimmtudaginn og gera eitthvað skemmtó með henni. Hún er orðin svo fullorðin að hún er komin með sitt eigið bókasafnskort! Eníveis, lifið í lukku en ekki í krukku

1 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Það er líka gaman að keyra á milli landshluta þegar maður getur blaðrað í símann við vinkonurnar - þú verður bara að fá þér handfrjálsan búnað stelpa, gengur ekki!!
Svo er þetta ekkert smá rökræður sem þú hefur komið þér í á hinu blogginu þínu... þú sigrar samt allar rökræður enda með eindæmum þrjósk ;)