föstudagur, september 14, 2007

Litla barnið mitt

Mér finnst eins og það hafði verið í gær að ég lá heima í íbúðinni upp í Gullengi með einhverjar skrítnar pílur í maganum. Ég lagðist á gólfið, ég bretti mig og fetti en allt kom fyrir ekki - þetta hætti ekki. Um nóttina var mér svo ljóst að þetta voru hríðar, ég var sjálf lítið lamb. Rétt skriðin í tvítugt. Föstudaginn 14.september 2001 kl. 12.20 fæddist litla prinsessan mín, mamma og Nonni voru með mér í fæðingunni. Ég man hvað hún var blá þegar hún fæddist en það var víst alveg eðlilegt. Prinsessan var vigtuð 4110 gr og 53 cm. Nýja famelían fór svo á Hreiðrið og reyndi að lúra smá áður en hún fór heim daginn eftir.
Þessi mynd var einmitt tekin stuttu eftir fæðinguna. Heima fengum við þjónustu frá ljósu sem heitir Ragnheiður, svo skemmtilega vildi til að hún var með mömmu á Skógum í den. Hún var yndisleg þessi ljósa og gerði þessa fyrstu daga örlítið auðveldari. Það var rosalega skrítið að vera allt í einu orðin mamma. Ég var mjög óörugg en sem betur fer hafði ég gott fólk í kringum mig.
Sem betur fer erfði María Rún svefnvenjur mínar og strax frá upphafi kom í ljós að henni þótt mjög gott að sofa. Þessi mynd er tekin af henni nokkra daga gamalli þá steinsofandi. Hún fékk sjaldan í magann, ég man eftir einu erfiðu tímabili en það stóð stutt - einhverjar vikur. En svo þroskaðist prinsessan mín og ég með :) Því miður eru ekki til digital myndir af henni í rúmt ár hérna hjá mér - mín framkallaði filmur þá.
En við höfum haft það að sið að vera alltaf hjá mömmu og Sigga á jólunum með einni undantekningu. Þessi mynd er tekin af "fyrstu" alvöru jólunum hennar Maríu. Hún var tiltölulega nýfarin að labba og borðaði eins hestur.
En það hefur alltaf verið vandamál með hana hvað hún borar í nefið - henni finnst það svo gott :)
Ég varð bara að skella þessari mynd með - ég er svo barnaleg þarna! Þetta er tekið í Leirubakkanum á aðfangadag 2002.
Sumarið 2003 byrjaði María Rún í leikskóla. Hún fór á Mánagarð og svo þaðan á Leikgarð 2 árum seinna. Hún tók mikið þroskastökk þegar hún byrjaði í leikskólanum og fór að reyna að gera allt sjálf. Þessi mynd er tekin nálægt Blöndudal sumarið 2003.
Hún var oft dauðuppgefin eftir leikskólann eins og á þessari mynd. Við komum heim einn daginn þar sem við bjuggum á Hjónagörðum, hún fór og fann sér þessar fínu stuttbuxur og glæsilega úrið sem ég átti þegar ég var lítil. Svo lagðist hún í sófann og steinsofnaði.
Jólin 2003 gaf Eiríkur afi hennar Maríu henni þessi stígvél í jólagjöf. Spariskórnir voru lítið notaðir þessi jól því stígvélin þóttu mun betri mér til mikillar gleði. Annars er þetta nú ágætis samsetning hjá henni.
Merkilegt nokk en María og Anna María hafa alltaf verið sólgnar í Trúðaís þrátt fyrir að þeim finnist ísinn ekkert sérstaklega góður - tyggjókúlan í botninum er aðalmálið. Þessi mynd er tekin í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum sumarið 2004. Pæjan var að byrja að koma hjá henni en Spiderman bakpokinn er á bakinu á henni - hún dýrkaði Spiderman og var meðal annars Spiderman á öskudaginn árið 2004. Sumarið 2005 fór María Rún í fyrsta skipti til útlanda. Við fórum til Færeyja með Norrænu og stoppuðum m.a. við Jökulsárlón á leiðinni austur. Þrátt fyrir að ferðalagið austur hafi tekið einhverja 12 klukkutíma þá sat hún aftur í bílnum og hafði það notalegt. Ég minnist þess ekki að nokkur pirringur hafi komist í kroppinn, við stoppuðum nokkrum sinnum til að hlaupa um og skoða en þess á milli sat hún og hlustaði á tónlist og sögur.
Í Færeyjum keyptum við fyrsta samstæðuspilið hennar Maríu - hún var búin að læra það utan að þegar við komum til Íslands og enn þann dag í dag tekur hún fram þetta spil og rústar manni gjörsamlega.
Þessi mynd er tekin kvöldið eftir 4 ára afmælið hennar Maríu, Barbie afmælið mikla. Stofan var undirlögð af Barbie dóti. En finnst ykkur hún ekki sæt með svona topp? Mig langar svo að hún láti klippa hann stuttan en það er ekki að ræða það....
Jólin 2005 fórum við til Tenerife með Maju og Begga. Ferðin var rosalega fín, við lentum í fellibyl án þess þó að vita af því. Rafmagnið fór af hótelinu og við náðum að skoða talsvert mikið af eyjunni. María naut þess í botn að vera í hitanum, auk þess fékk hún líka að fara nokkrum sinnum með pabba sínum á golfvöllinn á Playa de Americas.
En þegar við komum heim frá Tenerife þá fór hún að safna toppi, reyndar ýtti ég því að henni fyrst en nú fer toppurinn afskaplega í taugarnar á mér.
Sumarið 2006 fórum við mæðgur með stórfjölskyldunni til Hesteyrar um verslunarmannahelgina. Það var mjög sérstakt að koma þangað og upplifa alla söguna bak við byggðina þar. Bátsferðin þótti líka mikið ævintýri. Við vorum á Ísafirði alla helgina en fórum líka inn í Vigur með Sigrúnu og Agli Bjarna.
En svo leið tíminn og fyrr en varði var gelgjan mætt á heimilið. Þessi mynd er tekin um páskana 2007. 6 ára gelgjan hefur vonandi náð hámarki :)
Þessi prinsessa sem er búin að missa fjórar tennur, fá tvær fullorðins og með fimm lausar er 6 ára í dag. Í dag er skvísan komin í Melaskóla, hún er í 1.-D og unir sér vel. Hún er orðin fluglæs og leggur saman og margfaldar ef þannig liggur á henni. Hún er yndisleg þessi elska, afskaplega þver, fyndin, hlédræg, frek og skemmtileg. Til hamingju með daginn mömmusnúsa :)

9 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með daginn, ekkert smá skemmtileg færsla;) Fyndið hvað manni finnst þær vera nýfæddar en samt komnar nánast á gelgjuna...hehe;)

Og þúsundir þakkir fyrir björgunina í morgun:D

Helga Björg sagði...

Hæhæ og innilega til hamingju með sætustu skvísuna :)
Hún er alveg jafn dugleg og mamman, það er greinilegt!

Sjáumst vonandi á morgun :)

Knús af skaganum :)

Nafnlaus sagði...

Innilega til hamingju með skvísuna þína, ótrúlega skemmtilegt að lesa svona yfirlit - tíminn líður ótrúlega hratt!
Það var frekar skrýtin tilfinning þegar besta vinkonan var orðin að mömmu, fram að því höfðum við nú gert flest á svipuðum tíma en þarna fórstu aldeilis framúr mér!
Knúsaðu hana frá mér og kysstu, ég sé ykkur svo á morgun!

Nafnlaus sagði...

Vá.. Sunnefan fékk bara tár í augun! Ekkert smá skemmtileg og falleg faersla! Til hamingju med snúlluna elsku Ásdís mín!! Trúi ekki ad tad séu 6 ÁR!!!!

Tykir svooooooo vaent um ykkur og knúsa ykkur í huganum..

Nafnlaus sagði...

ohh svo sæt, til hamingju með snúlluna og knúsaðu hana frá okkur í Hjallalundinum. Yndislegt að skoða þessar myndir af henni og breytingarnar sem hafa orðið á henni :)

Nafnlaus sagði...

ææææi- maður fer nú bara að væla! Tötsæy þessa dagana- þú skilur.

En til lukku með skvísuna sætu!

HH

Nafnlaus sagði...

Æðislegar myndir. En hvernig er það, eigum við ekkert að leyfa börnum okkar að hittast :) við fórum nú að leika þegar við vorum 6 ára :) Svo þurfum við að finna kvöld fyrir kaffihús :)
kv. Kidda

Ásdís Ýr sagði...

Anna Rut- Takk takk, merkilegt nokk að maður tekur ekki eftir því hvað tíminn líður. En ekkert mál með björgunina :)

Kidda - mannstu eftir 6 ára bekknum okkar í kjallarnum á gamla skólanum? Við vorum næstum því með eins límmiða á snögunum okkar :) Líst vel á kaffihús

Feykirófan - takk takk, hún er algjör dugnaðarforkur ef hana langar :) Hittumst vonandi fljótlega

Guðrún -Takk takk, það er óhætt að segja það að ég hafi aðeins skotist fram úr þér þarna :)

Sunnefa - Takk, takk. Ekki gráta Sunnefa mín :) Okkur þykir líka ótrúlega vænt um þig og María má ekki heyra það nefnt að þú sért í Chile - hún vill fá þig heim eins og ég...

Valla - Takk kærlega fyrir. Sömuleiðis til hamingju með litla prinsinnn. Við ætlum að reyna að kíkja norður fljótlega en læt þig vita.

Hildur Halla - Njóttu þess að fá að gráta án þess að nokkur kippi sér upp við það :) Takk takk

Nafnlaus sagði...

Guð minn góður já :) ótrúlegt að maður man eftir þessum tíma :) við hittumst fyrst þegar ég var að hjóla niður Heiðarbrautina :)
Kidda