mánudagur, desember 04, 2006

DramaQueen


Þú ert miðlungssteikt dramadrottning.


Miðlungssteiktar dramadrottningar eru konur meðalhófs. Þær eru skynsemisverur miklar, hafa sterka réttlætiskennd og vilja öllum vel. Í raun myndu flestar miðlungssteiktar dramadrottningar frekar vilja vera baunabuff en hamborgari því þá hefðu engin saklaus dýr þurft að líða fyrir samlíkinguna.

Miðlungssteiktar dramadrottningar hafa algera stjórn á dramatíska hluta heilans. Í raun verður sjaldan vart dramatískrar hegðunar hjá hinni miðlungssteiktu. Ekki einu sinni slæmur hárdagur getur raskað ró hennar.

Miðlungssteiktar dramadrottningar eru hæglátar, yfirvegaðar en fylgispakar. Þær eru trúar leiðtoga sínum sem er gjarnan léttsteikta dramadrottningin og fylgja henni oft í blindni. Þegar á reynir er hún hins vegar ekki tilbúin til að hvika frá sannfæringu sinni og á það til að vera samviska þeirrar léttsteiktu og halda henni á jörðinni.

Hversu mikil dramadrottning ert þú?

4 ummæli:

Nafnlaus sagði...

heyrðu, ég er alveg eins og þú.. meðalsteikt og fín :)

Ásdís Ýr sagði...

hehe.. við erum svo líkar :) Er verið að læra langt fram á nótt??

Nafnlaus sagði...

si si.. er að taka þína taktik á þetta.. s.s. sofa ekkert, læra meira :) Heyrumst í kvöld honný og takk æðislega fyrir hjálpina áðan.. þú alveg bjargaðir mér!!!!!!!

kiss kiss

Nafnlaus sagði...

hmmm ég held að þetta standist ekki....ég er vel steikt dramadrottning.....það þýðir að ég sé ekkert dramatísk:-S þeir sem þekkja mig vita að ég er með afburðum dramatísk:) hmmmm? ég er að velta því fyrir mér hvort ég eigi að verða skúffuð yfir að fá dóm um að vera "ódramatísk"...er það gott eða slæmt?? hmmm?