föstudagur, september 22, 2006
Ótrúlega spúkí!
Ég man svo vel eftir því þegar hryðjuverkin voru gerð á tvíburaturnana fyrir 5 árum. Ég lá í sófanum upp í Gullengi með Betty og mjólkurglas, fyrirvaraverkirnir voru komnir til að vera og ekkert í sjónvarpinu nema fréttir :) Mér finnst rosalega gaman af M. Moore og hans pælingum, kaupi þær nú ekki allar en hann er kúl. Einhvern veginn held ég að heimurinn væri öðruvísi í dag ef Al Gore hefði fengið blessaða forsetaembættið eins og hann átti að gera, ég efast um að hann hefði brugðist eins við. Að auki finnst mér Hugo Chavez forseti Venezuela hetja vikurnnar, hann þorði að segja það opinberlega það sem margir hugsa. En ég rakst á þetta á netinu áðan, fannst þetta bara spúkí...
1. Í New York City eru 11 bókstafir
2. Í Afghanistan eru 11 bókstafir
3. Í nafni Ramsin Yuseb (Hryðjuverkamaðurinn sem hótaði að eyðileggja Twin Tower árið 1993) eru 11 bókstafir.
4. Nafnið George W Bush er 11 bókstafir
Þetta gæti allt verið hrein tilviljun, en nú verður þetta áhugavert:
1. New York er 11. fylkið
2. Í flugi 11 voru 92 farþegar (9 + 2 = 11)
3. Í flugi númer 77 sem einnig flaug á tvíburaturnana voru 65 farþegar (6 + 5 = 11)
4. Árasinn átti sér stað 11. september, sem er einnig þekkt sem 9/11 (9 + 1 + 1 =11)
5. Dagsetningin er eins og neyðarnúmerið í Bandaríkjunum 911 (9 + 1 + 1 = 11)
Ennþá hreinar tilviljanir?? Haltu lestrinum áfram.....
1. Heildarfjöldi fórnarlambanna sem voru í flugvélunum sem notaðar voru í árásunum var 254 (2 + 5 + 4 = 11)
2. 11. september er 254. dagurinn á árinu (2 + 5 + 4 = 11)
3. Hryðjuverkaárásin í Madríd átti sér stað 3.11.2004 (3 + 1 + 1 + 2 + 0 + 0 + 4 = 11)
4. Hryðjuverkaárásin í Madríd átti sér stað 911 dögum eftir árásina á Twin Towers. ...
og nú kemur það sem er ennþá merkilegra:
Á eftir fána Bandaríkjanna (Stars and stripes) þá er Örninn þekktasta merki landsins *
Í eftirfarandi versi úr Kóraninum, hinni helgu ritningu Íslam, stendur:
"For it is written that a son of Arabia would awaken a fearsome Eagle. The wrath of the Eagle would be felt throughout the lands of Allah and while some of the people trembled in despair still more rejoiced: For the wrath of the Eagle cleansed the lands of Allah and there was peace."
Þetta er vers númer 9.11 í Kóraninum.
Heldur þú ennþá að um hreinar tilviljanir sé að ræða?
Prófaður þá eftirfarandi:
* Farðu í Microsoft Word og gerðu þetta:
1. Skrifaðu með hástöfum: Q33 NY. Flugnúmerið á fyrstu vélinni sem var flogið á tvíburaturnana.
2. Litaðu Q33 NY
3. Breyttu stafastærðinni í 48
4. Breyttu leturgerðinni í WINGDINGS (eða WINGDINGS 1)
ÓGNVEKJANDI!!
fimmtudagur, september 07, 2006
Smala smala smala
Næsta helgi verður tekin rólega, eða svona eins rólega eins og hægt er við að smala heimskum kindum niður í rétt. Við förum norður á morgun eftir vinnu og skóla, ég ætla að stefna að því að komast í Borgarnes í kvöldmat :) Við verðum í sumarbústað á Skagaströnd
Bústaðurinn er rosalega fínn, við vorum líka þarna þegar jarðaförin hennar ömmu var. Lítill og kósý á fallegum stað í bænum
Ég hef tvisvar sinnum á ævinni sleppt því að fara í réttir- í fyrsta skiptið var ég upptekin upp á Kvennadeild LSH að fæða Maríu. Ég man svo vel eftir því þegar ég hringdi, amma svaraði í símann og ég sagði henni að María væri fædd. Seinna skiptið man ég ekki af hverju ég kom ekki- hreinlega man það ekki. En fyrst ég er í svona sveitastuði þá verð ég nú að sýna ykkur mynd af fallegu sveitinni minni, Hallárdalurinn sést svo vel og Halláin sem við fórum nokkrum sinnum útí að vaða við mikla gleði laxveiðimanna. Svo er náttla bærinn okkar, Vindhæli í öllu sínu veldi.
Eigið góða helgi- ég ætla að hafa það næs
Bústaðurinn er rosalega fínn, við vorum líka þarna þegar jarðaförin hennar ömmu var. Lítill og kósý á fallegum stað í bænum
Ég hef tvisvar sinnum á ævinni sleppt því að fara í réttir- í fyrsta skiptið var ég upptekin upp á Kvennadeild LSH að fæða Maríu. Ég man svo vel eftir því þegar ég hringdi, amma svaraði í símann og ég sagði henni að María væri fædd. Seinna skiptið man ég ekki af hverju ég kom ekki- hreinlega man það ekki. En fyrst ég er í svona sveitastuði þá verð ég nú að sýna ykkur mynd af fallegu sveitinni minni, Hallárdalurinn sést svo vel og Halláin sem við fórum nokkrum sinnum útí að vaða við mikla gleði laxveiðimanna. Svo er náttla bærinn okkar, Vindhæli í öllu sínu veldi.
Eigið góða helgi- ég ætla að hafa það næs
mánudagur, september 04, 2006
Hvar er draumurinn????
Ég mætti í vinnuna sönglandi Sálarlög- helgin var æði! Við Hildur fórum út að borða á Hereford á laugardaginn til að halda upp á afmælið hennar á föstudaginn og svo mitt síðasta vor :) Við fengum okkur þríréttaðan veislumat- jeminn hvað kjötið var gott. Sæmi Helgupabbi var þarna líka, ég sá hann en þóttist ekki sjá hann því ég var ekki viss um hvort hann þekkti mig... hef sko ekki hitt manninn í 4 ár held ég. Svo fæ ég sms frá Helgunni- kallinn hafði þekkt mig. Ég stökk þá til og heilsaði upp á kappann, hann var hress að vanda.
---
Við Hildur sátum svo að sumbli á barnum á Hereford og veltum fyrir okkur framhaldi kvöldsins... við tókum ákvörðun um að fara á Sálina í Hlégarði. Við fórum með stelpunum í partý til Davíðs Jóns og djúsuðum aðeins meira þar fyrir ballið. En ballið var æði- mikið sungið, mikið dansað og mikið talað. Bara gaman.
---
Gærdagurinn var svolítið erfiður... eiginleg rosalega erfiður. Ég var að farast úr þvinnku en það reddaðist eins og allt :*)
sunnudagur, ágúst 13, 2006
....
Merkilegt hvað fólk er misjafnt. Lífið er skrítið. Alltaf finnst mér jafn merkilegt þegar sumir þykjast ekkert vita um eigin framkomu og láta eins og englar, jú það gæti eyðilagt þeirra mannorð...???? Sumir þurfa líka að fá að vita að aðrir hafi séð til þeirra? Er leikurinn gerður til þess, ég spyr? Á að stilla fólki upp við vegg og láta það taka afstöðu? Ekki fyrir mig, ég veit hverjir mínir vinir eru.
---
Ég hef mikið velt því fyrir mér í sumar hverja ég telji til minna vina og hverja ekki, ég hef áttað mig á því að vinir mínir eru fáir en góðir. Við Sunnefa áttum virkilega góða tíma saman og gátum rætt um allt á milli himins og jarðar, vinir eru þeir sem þú getur talað við þegar þú þarft sama hversu langt er síðan síðast. Það eru vinir.
---
Ég var að koma heim frá Guðrúnu, hún var að halda upp á síðbúið afmæli í dag. Hva, það er ekki nema rétt rúmur mánuður síðan hún átti afmæli. Ég er að spá í að halda upp á afmælið mitt í september þegar Sunnefa kemur heim og María er búin að eiga afmæli, bjóða nokkrum heim í smá skemmtó.. kannski Singstar eða eitthvað? Sjáum til, ætli ég verði ekki of upptekin til þess, kannski held ég bara upp á þrítugs afmælið mitt. Þá verð ég alla vega búin í skólanum og ekki í prófatörn á afmælinu...
---
En svona er lífið
sunnudagur, júlí 30, 2006
Home sweet home
Komin heim í kotið mitt, það er ekki laust við að maður sakni þjónustunnar í anddyrinu hennar Sunnefu þegar maður röltir inn á Vetrargarð með allar hendur fullar og reynir að opna bévítans hurðina. En ég held það sé samt betra að búa á Íslandi, alla vega sem einstæð móðir í námi heldur en í Chile :)
---
Ég kom heim aðfararnótt mánudags eftir "smá" hrakfarir á leiðinni, en ég komst. Hrakfarirnar hófust reyndar strax á flugvellinum í Santiago. Þar var ég rukkuð um 580 dollara í yfirvigt- handfarangurinn minn var meira að segja of þungur? Ég fékk smá panikkast þar sem ég hafði gert mér grein fyrir því að þurfa að borga yfirvigt en ekki svona helv mikið. Ég fór að hringja heim.. og hringdi og hringdi. Síminn minn var aldrei þessu vant ömurlegur á flugvellinum og ég náði aldrei sambandi út úr landinu fyrr en Maja systir bjargvætturinn sjálfur svaraði loksins og litla systa á flugvellinum í Suður- Ameríku missti það... Málið reddaðist með því að ég borgaði 20 þús í yfirvigt þar. Ég hljóp í gengum flugvöllinn og kom móð í gateið mitt, stoppaði reyndar á leiðinni til að reykja og hringja í Maju og láta hana vita að þetta hefði reddast.
---
Flugið til Madrid var æði, vélin var æði- það var alltaf val um tvennt í öllum máltíðum, ekkert plastdrasl heldur stálhnífapör og glerglös og að sjálfsögðu allt frítt um borð nema sterkt áfengi. Svo spillti ekki fyrir að ég hafði minn eigin skjá þar sem ég gat valið á milli fjölda bíómynda, sjónvarpsþátta og sjónvarpsstöðva. Ég sat því í makindum mínum í sætinu og mundaði fjarstýringuna langleiðina- svaf sama og ekkert :( á miðri leið fattaði ég svo að fjarstýringin var líka sími, bara svona rétt ef maður þyrfti að ná í einhvern. Símtalið kostaði reyndar 6$ mínútan... pínku dýrt símtal.
---
Ég komst svo loks til London í bræluna, vá hvað ég fékk ógeð af hita þar. Borgaði smá yfirvigt þar, sami farangur vigtaðist reyndar talsvert léttari heldur en í Santiago en hvað með það?? 2 tíma seinkun var á fluginu heim, enginn vildi taka við pesoum og hvergi var hægt að skipta þeim, ég komst varla í skóna mína fyrir bjúg og ég var þreytt og sveitt- lítið sæt sem sagt. En María og Nonni komu og tóku á móti mér úti á velli þegar ég loksins lenti, litla snúllan mín sagði ekki orð. Knúsaði mig bara. Ég var svo ánægð að sjá hana, ég fékk alveg tár í augun. Síðasta vika hefur svo verið algjör mömmudekurvika, við erum mest búnar að vera 2 saman að dundast og sofa einstaklega mikið. Hún hefur svo mikla þörf fyrir athygli mína þessa dagana, enda ekkert skrítið, ég var náttla frekar lengi í burtu þannig séð.
En Chile, æðislegur tími. Mér finnst ekkert smá skrítið að hugsa til þess að ég hafi farið til Suður- Ameríku og heimsótt Sunnefu. Á öllum ferðalögunum hennar hef ég oft látið mig dreyma um að fara til hennar en aldrei látið verða af því fyrr en ég fékk þessa flugu í hausinn út í garði hjá henni á Hávallagötunni, flugan sat föst þar til ég var búin að panta. Mig langar að fara aftur út en þá með Maríu með mér til að læra spænsku, þó svo að ég hafi bara verið í 11 daga hjá henni þá var ég farin að skilja fullt þó svo ég hafi nú ekki talað neitt þannig séð :) það talar eiginlega enginn ensku svo maður bara verður að reyna að skilja eitthvað. En María þarf að vera eldri finnst mér, kannski 10 ára eða eitthvað? Bara fluga í hausnum núna...
Þjóðfélagið er mjög ólíkt því sem við eigum að venjast hér, eftir því sem ég hugsa meira um það þá er stéttskiptingin þarna mjög áberandi. Þarna skiptir öllu máli að eiga pening, peningar eru nánast allt því án þeirra ertu ekki og getur ekki orðið neitt. Góð menntun er mjög dýr og ég held að flestir ef ekki allir fari í einkaskóla. Hverfin þarna eru mjög misjöfn, Sunnefa og Pulga búa bæði í mjög fínum hverfum, ríkum og öruggum hverfum. Allir eru samt með þvílíkar girðingar hjá sér, ég tók eftir því líka við sum húsin í Peterson, fátækrahverfi sem við fórum í.
---
Mér fannst líka mjög merkilegt að margir horfa meira í það sem Pinochet gerði fyrir efnahaginn í landinum á valdatíma sínum heldur en morðin og pyntingarnar sem hann stóð fyrir. Fyrir hans tíð voru lífsgæðin í landinu önnur, reyndar kommúnismi held ég en þeir ríku efnuðust margir í hans valdatíð og hafa stefnu hans í efnahagsmálum margt að þakka. Ég er ekki mikil efnishyggjumanneskja og frjálshyggja í stjórnmálum er eitthvað sem ég skil ekki, ég held að við megum í raun þakka fyrir það að frjálshyggjan hefur ekki rutt sér meira til rúms hér á landi en hún hefur gert. Viljum við sjá fólk búa við ömurlegar aðstæður eins og ég sá þarna úti, ég held ekki.
---
Mörgum þarna úti fannst mjög sérstakt að ég væri ein með Maríu og í námi, að auki fannst þeim mjög sérstakt að vita til allrar þeirra opinberu aðstoðar sem ég fæ sem við Íslendingar viljum oft kvarta og kveina yfir, ég fæ náttla námslán, barnabætur og húsaleigubætur frá opinbera kerfinu- án þessa gæti ég aldrei verið í skóla. Samt gaman að vita að maður er einhvers staðar sérstakur :) hér á landi þykir ekki mikið mál að vera einn með barn og í námi.
---
Samskipti á milli fólks eru líka allt öðruvísi en hér, að sofa hjá er ekki leyft á flestum heimilum. Par sem vill sofa saman en er ekki gift þarf að redda sér stað til þess, margir kjósa að fara á sérstök mótel jafnvel. Þú ferð ekkert heim með kærastann og leyfir honum að kúra hjá þér!
---
Ég lenti í ýmsum ævintýrum þarna, rafmagn virtist til dæmis ekki þola nærveru mína :) ég var rænd án þess þó að ég tæki eftir því, ég fór í tequila keppni upp á gamla mátann (16 again), móðgaði fólk (mann) þegar ég helt að ég væri að vera kurteis og hitti fullt af skemmtilegu og yndislegu fólki. Fjölskyldan hans Pulga virtist vera sérstaklega indæl, þau buðu mig velkomin til sín og voru bara rosalega næs. Vinkona Sunnefu, Natsha skutlaðist með okkur fram og til baka í verslunarferðir og bara allir hinir- voða næs. Einum vini Pulga fannst meira að segja góð lykt að mér :) Þefaði ekki af honum svo ég veit ekki hvernig lykt var af honum... ekki alveg mín týpa :)
---
Ef einhver hefur nennt að lesa þetta allt saman þá er ég búin að skella inn nokkrum MYNDUM, ef sá hinn sami hann að snúa myndum sem hafa verið settar inn á fotki má hann endilega láta mig vita....
En Chile, æðislegur tími. Mér finnst ekkert smá skrítið að hugsa til þess að ég hafi farið til Suður- Ameríku og heimsótt Sunnefu. Á öllum ferðalögunum hennar hef ég oft látið mig dreyma um að fara til hennar en aldrei látið verða af því fyrr en ég fékk þessa flugu í hausinn út í garði hjá henni á Hávallagötunni, flugan sat föst þar til ég var búin að panta. Mig langar að fara aftur út en þá með Maríu með mér til að læra spænsku, þó svo að ég hafi bara verið í 11 daga hjá henni þá var ég farin að skilja fullt þó svo ég hafi nú ekki talað neitt þannig séð :) það talar eiginlega enginn ensku svo maður bara verður að reyna að skilja eitthvað. En María þarf að vera eldri finnst mér, kannski 10 ára eða eitthvað? Bara fluga í hausnum núna...
Þjóðfélagið er mjög ólíkt því sem við eigum að venjast hér, eftir því sem ég hugsa meira um það þá er stéttskiptingin þarna mjög áberandi. Þarna skiptir öllu máli að eiga pening, peningar eru nánast allt því án þeirra ertu ekki og getur ekki orðið neitt. Góð menntun er mjög dýr og ég held að flestir ef ekki allir fari í einkaskóla. Hverfin þarna eru mjög misjöfn, Sunnefa og Pulga búa bæði í mjög fínum hverfum, ríkum og öruggum hverfum. Allir eru samt með þvílíkar girðingar hjá sér, ég tók eftir því líka við sum húsin í Peterson, fátækrahverfi sem við fórum í.
---
Mér fannst líka mjög merkilegt að margir horfa meira í það sem Pinochet gerði fyrir efnahaginn í landinum á valdatíma sínum heldur en morðin og pyntingarnar sem hann stóð fyrir. Fyrir hans tíð voru lífsgæðin í landinu önnur, reyndar kommúnismi held ég en þeir ríku efnuðust margir í hans valdatíð og hafa stefnu hans í efnahagsmálum margt að þakka. Ég er ekki mikil efnishyggjumanneskja og frjálshyggja í stjórnmálum er eitthvað sem ég skil ekki, ég held að við megum í raun þakka fyrir það að frjálshyggjan hefur ekki rutt sér meira til rúms hér á landi en hún hefur gert. Viljum við sjá fólk búa við ömurlegar aðstæður eins og ég sá þarna úti, ég held ekki.
---
Mörgum þarna úti fannst mjög sérstakt að ég væri ein með Maríu og í námi, að auki fannst þeim mjög sérstakt að vita til allrar þeirra opinberu aðstoðar sem ég fæ sem við Íslendingar viljum oft kvarta og kveina yfir, ég fæ náttla námslán, barnabætur og húsaleigubætur frá opinbera kerfinu- án þessa gæti ég aldrei verið í skóla. Samt gaman að vita að maður er einhvers staðar sérstakur :) hér á landi þykir ekki mikið mál að vera einn með barn og í námi.
---
Samskipti á milli fólks eru líka allt öðruvísi en hér, að sofa hjá er ekki leyft á flestum heimilum. Par sem vill sofa saman en er ekki gift þarf að redda sér stað til þess, margir kjósa að fara á sérstök mótel jafnvel. Þú ferð ekkert heim með kærastann og leyfir honum að kúra hjá þér!
---
Ég lenti í ýmsum ævintýrum þarna, rafmagn virtist til dæmis ekki þola nærveru mína :) ég var rænd án þess þó að ég tæki eftir því, ég fór í tequila keppni upp á gamla mátann (16 again), móðgaði fólk (mann) þegar ég helt að ég væri að vera kurteis og hitti fullt af skemmtilegu og yndislegu fólki. Fjölskyldan hans Pulga virtist vera sérstaklega indæl, þau buðu mig velkomin til sín og voru bara rosalega næs. Vinkona Sunnefu, Natsha skutlaðist með okkur fram og til baka í verslunarferðir og bara allir hinir- voða næs. Einum vini Pulga fannst meira að segja góð lykt að mér :) Þefaði ekki af honum svo ég veit ekki hvernig lykt var af honum... ekki alveg mín týpa :)
---
Ef einhver hefur nennt að lesa þetta allt saman þá er ég búin að skella inn nokkrum MYNDUM, ef sá hinn sami hann að snúa myndum sem hafa verið settar inn á fotki má hann endilega láta mig vita....
miðvikudagur, júlí 19, 2006
...
Jamms ég er enn í Chile og lífið er ljúft nema hvað ég sakna Maríu einstaklega mikið núna. Ég var að lesa á netinu hjá Bryndísi Evu, veik lítil skvísa á Landspítalanum. Fær mann til að hugsa mikið heim, langar að knúsa skvísuna mína núna. Ég er búin að kaupa ógeðslega mikið handa henni, stundum held ég að ég sé að kaupa mér samvisku :) Hún verður alla vega skvísa í skólanum í vetur með prinessuskólatösku í öllu bleiku- flest öll fötin sem ég er búin að kaupa eru bleik enda vill hún helst bara ganga í bleiku eins og Fíasól. Ég var þvílíkt heppin áðan, fór í mollið með Sunnefu og kíkti í Oshkosh búðina- 2 fyrir 1 af öllu þar. Gallaði skvísuna ansi vel upp fyrir skít og kanil.
---
Annars byrjaði ég daginn í dag á því að rölta út í búð, skötuhjúin voru enn sofandi þegar ég vaknaði og veðrið geðveikt. Okkur vantaði ýmislegt úr búðinni svo ég skellti hárinu í teygju, henti mér í íþróttagalla sem ég sjoppaði í gær á 1000 kall og rölti galvösk af stað. Ég var ógeðslega úldin og smá þunn.... við kíktum í partý og grillveislu í gærkvöldi og el vikinga lenti í tequila keppni... alla vega aftur að búðinni, ég komst á leiðarenda og skellti hinu og þessu í körfu og kom svo að kassanum. Kassadaman sagði eitthvað á spænsku við mig og ég svaraði bara NO án þess að vita hvað hún væri að segja, ég hef bara tekið eftir því að Sunnefa segir alltaf nei :) svo fór ég að spá í því hvort hún væri að spyrja mig um pokana eða eitthvað en Sunnefa er nokkuð viss um að hún hefði verið að spyrja mig um afsláttarkort í búðinni... neibb, ekkert svoleiðis. Þegar ég kom til baka var veðrið enn geðveikt og Sunnefa og Pulga að vakna, ég skellti mér því upp á þak í sólbað. Jamms það er hávetur og sólin skín. Ég sat þar í dágóðan tíma en kom svo niður á fínum tíma í hádegismat hjá Pulga, gúmmelaði á pönnu ofan á brauð- ógeðslega gott. Eftir matinn fórum við öll upp, sólin steikti mann gjörsamlega. Við fengum okkur svo kvöldmat á Sushi stað sem Sunnefa heldur mikið upp á, fínn matur.
---
Síðustu dagar hafa einkennst af miklum mat, áfengi og búðum. Við fórum á djammið á laugardaginn, enduðum á risadiskóteki þar sem við dönsuðum og spjölluðum. Vá hvað ég kann ekki að dansa hérna, ímyndið ykkur 1000 Homero á dansgólfinu :) Ótrúlega spes afgreiðslan á barnum, fyrst þarf maður að fara til gjaldkera og panta það sem maður vill fá og fer svo með miða á barinn. Engum treyst fyrir peningum hérna, þetta er líka oft svona í búðum. Maður borgar og fær svo vöruna afhenta með því að sýna kvittunina fyrir því að hafa greitt. Á sunnudaginn fórum við í grill til frænda hans Pulga sem býr mjög ofarlega í borginni, maður keyrir upp í móti nánast alla leið til hans. Mjög flott allt saman og maturinn æði. Fyrst fengum við pylsur, svo kjúkling og svo nautakjöt. Kjötið hérna er ekkert smá gott, þeir salta bara kjötið... sennilega erum við að skemma bragðið af kjötinu heima með öllum þessu kryddum. Í gær var svo önnur grillveisla hjá vinum hans Pulga hérna rétt hjá sem já endaði í tequila keppni...
---
Í gærdag fórum við Sunnefa í Patronato sem er eiginlega Arabahverfi en það búa engir Arabar þar, arabískir veitingastaðir og fullt af búðum og mörkuðum á götunum. Við tókum metróið þangað, ég þurfti að fela skartgripina mína þarna því það er víst mjög mikið um að fólk sé rænt þarna. Í þessu hverfi er fólkið ekki eins ríkt og hérna sem Sunnefa býr, metroið er meira að segja lélegra þar- gamlar lestar og sjúskaðar. En gaman að versla þarna, fullt af svona heildsölubúðum þar sem búðirnar hérna versla og selja svo hér. Keypti alveg slatta og var orðin svolítið stressuð þegar við vorum á leiðinni heim í myrkrinu... var nánast orðin alveg viss um að við yrðum rændar.
---
Núna erum við öll þvílíkt löt, ég ligg í rúminu hennar Sunnefu með hitadýnuna í gangi og blogga. Sunnefa liggur í sófanum og les bókina um Thelmu, ég held að hún sé komin langt með hana og Pulga horfir á imbann. Þvílík leti í okkur. Við Sunnefa erum að fara á morgun með vinkonu hennar í Kínamoll sem er víst algjör draumur, mjög líkt Patronato en samt ódýrara. Ég er búin að pakka niður því sem ég hef keypt fyrir aðra en sjálfa mig í tvær töskur, mest megnis fyrir Maríu. Þá á ég bara eina tösku eftir til að koma öllu hinu niður, en það fyndna er þótt ég sé búin að kaupa og kaupa þá er ég ekki búin að eyða miklum pening. Til dæmis þá kostaði það sem ég keypti í Oshkosh búðinni 7 þús kall- 3 buxur, 5 peysur, eitt vesti og 2 pils, samt voru þau föt frekar dýr þannig séð.....
---
Ég lendi á klakanum á sunndagskvöldið, hlakka óendanlega til að knúsa skvísuna mína og kúra hjá henni. Lesa fyrir hana og spila samstæðuspilin hennar og bara halda í litlu hendina hennar á meðan hún sofnar. Hún er svo mikið yndi þessi elska. Samt ekki misskilja mig, það er alveg æði hérna og mig langar pottþétt að koma aftur en þá með Maríu með mér. Jafnvel koma og læra spænsku, tekur ekki langan tíma hérna þar sem ansi fáir tala ensku- eiginlega enginn svo maður verður að reyna að babbla á spænsku. Ég er búin að læra smá og skil orðið svolítíð, alla vega getum við Pulga spjallað smá saman þó hann kunni ekki ensku :)
---
Jæja, hætta þessu blaðri kona! Ég ætla að halda áfram í letinni og liggja á netinu.
laugardagur, júlí 15, 2006
Chile Chile Chile
Chile er æði! Það var rétt hjá Sunnefu í síðasta pósti að Iberia fór í verkfall- ég flaug með Iberia frá Madrid og hingað. Ég fattaði það nú ekkert strax að það væri verkfall í gangi en í London var búið að canela mörg flug með Iberia, ég hélt að það væri bara af því farþegarnir væru fáir eða eitthvað. Mitt flug var enn á sínum stað svo ég hafði ekki áhyggjur af því. Í Madrid var svo klukkutímaseinkun þar sem verkfallsaðgerðir voru í gangi- þá fattaði litli græni Íslendingurinn að það væri verkfall hjá Iberia. Bílum var lagt fyrir vélina svo hún komst ekki út á braut. En loksins fórum við í loftið, ég vopnuð bókum, nammi og níkótíntyggjói. Til að gera langa sögu stuttu las ég ekki staf í þessu flugi, borðaði ekkert nammi og snerti ekki nikótíntyggjóið. Flugið var draumur- ég svaf alla leiðina á milli þess sem borin var fram matur, 14 tímar liðu eins og 2.
---
Sunnefa tók á móti mér á flugvellinum á lánsbíl sem er orðinn eitthvað tæpur á geyminum, alla vega var hann rafmagnslaus þegar við komum út en við dóum ekki ráðalausar, við ýttum kagganum í gang. Fyrst fór alarmið reyndar í gang því fjarstýringin virkaði ekki en Sunnefa náði að slökkva á því- við vorum glæsilegar þarna. Þegar við keyrðum inn í borgina keyrðum við meðfarm fátækrahverfum, jesus segi ég nú bara. Ég finn ótrúlega til með fólkinu þarna. En Andes fjöllin fengu meiri athygli hjá mér í þetta sinn, þau gnæfa hérna yfir með snjó í toppunum- ekkert smá fallegt.
---
Við erum búnar að versla heil ósköp, fyrir skid og ingenting án gríns. Föt kosta hérna svona 10-20% af því sem þau kosta heima. Ég er búin að versla á mig, Maríu, Önnu Maju og Ottó alveg slatta. Við eigum eftir að fara á tvo staði til að versla, eitthvað Kínamoll og í Arabahverfið. Þar er víst mikið ódýrara en hérna nálægt, ég spyr er það hægt? Í fyrradag fórum við í miðbæinn að skoða ráðhúsið og byggingarnar þar, rosalega flott allt saman, Ég tók upp á videó þegar hermennirnir eru að skipta um varðstöður við ráðhúsið, smá skerí en samt flott. Í gær fórum við með Pulga að keyra ömmu hans til Vina del Mar sem er við ströndina. Amma hans Pulga býr í húsi upp í hlíð en megnið af bænum er byggt í klettum, útsýnið frá ömmu hans var ótrúlegt. Við keyrðum svo aðeins um bæinn áður en við fórum heim, þetta er einn vinsælasti ferðamannastaðurinn hérna og fyndið að sjá hvað það er mikil Spánarstemmning. Frá Vina del Mar keyrðu við til Valparaísó sem eins gjörsamlega andstaðan við Vina del Mar. Greinilega mikil fátækt og allt eitthvað subbó en samt spennandi að skoða. Valparaísó er meira eins og ég hafði ímyndað mér að Chile væri, langt frá því.
---
Sunnefa býr í frábæru húsi á frábærum stað, maður horfir á metroið og Andesfjöllinn út um stofugluggann hjá henni og hún er með andyri og dyraverði og allt saman. Frekar flott- bara svona eins og á hóteli. Dagurinn í dag er óplanaður en það verður án efa eitthvað skemmtilegt, við erum búnar að eiga frábæran tíma hérna saman. Spjalla um allt og ekkert, sötra rauðvín og kók og njóta lífssins..
---
Ég get samt ekki neitað því að ég sakna Maríu mjög mikið, ég er búin að tala aðeins við hana í símann og í gærkvöldi var eiginlega fyrsta skiptið sem hún vildi tala við mig :) Hún er aðeins að láta mömmu sína finna fyrir þessu, mig hlakkar rosalega til að koma heim og sýna henni allt sem ég er búin að kaupa fyrir hana og bara knúsa hana. Annars bara njótið lífsins!
mánudagur, júlí 10, 2006
A leidinni til Chile
Tha er eg logd af stad til Sunnefu, eg for af stad fra Keflavik kl. 7.40 i morgun og er nuna a Heathrow ad bida eftir naest vel.. 2 klst i tha. Eg held ad eg se buin ad skoda allt sem haegt er ad skoda her a flugvellinum og borda versta hamborgara sem eg hef smakkad- eg skar kjotid a honum i tvennt thvi thad var svo vidbjodslega thykkt- abyggilega 10 cm eda eitthvad.
---
Ferdin hingad gekk nu samt alveg agaetlega, flugid var mjog fint ef vid hundsum 20 minuturnar sem velin hringsoladi her yfir. Ferlega faranlegt eitthvad, hun var alltaf ad laekka og haekka flugid til skiptis. En eg paeldi litid i thvi en folkid i kringum mig hefur sennilega paelt eitthvad i mer.. eg gret heil oskop a leidinni milli thess sem eg reyndi ad lesa eda sofa. Thad var svo erfitt ad kvedja Mariu i morgun, vid forum badar ad grata :( Eg var meira ad segja mikid ad spa i ad fara ut ur velinni adur en hun for i loftid heim.. gerdi thad nu ekki. Eg hlakka alveg ostjornlega til ad koma heim til hennar eftir taepar tvaer vikur. Hun er litla lifid mitt.
---
Jaeja best ad haetta thessu voli- eg aetla ad kikja a barnaland.is og mailid mitt til ad drepa timann.
laugardagur, júlí 01, 2006
Tíminn líður hratt á gervihnattaöld....
Mér finnst eins og það hafi verið í fyrradag sem ég pantaði miðann til Sunnefu... ekki alveg! þetta er bara að skella á eftir 9 daga. Einn daginn er ég að farast úr spenningi og hinn daginn er ég að farast úr samviskubiti yfir því að fara til útlanda án Maríu. Ég veit að henni á eftir að líða vel á meðan, hún fær að fara með pabba sínum í ferðalag og heimsækja uppáhaldsvinkonuna sína á Akureyri.
---
Ég veit að ég er búin að segja við alla að ég ætli ekki að versla mikið þarna né eyða miklum pening, ég er samt búin að finna Diesel búð og Puma búð sem ég ætla að plata Sunnefu með mér í. Svo er kjólabúð sem hún vill endilega fara með mig í.. segi ekki nei við kjól á örfáa hundraðkalla. Litli græni Íslendingurinn er líka búin að vera að undirbúa sig fyrir ferðlagið, sumt sársaukafullt en annar undirbúiningur fólst í símtölum við Tryggingastofnum og Ræðismann Chile... Ég fékk nokkrar sprautur og er enn að farast í öðrum upphaldleggnum en ég ætti að vera seif næstu árin gangvart barnaveiki, mænusótt, stífkrampa, lifrarbólgu A og taugaveiki. Ég er komin með pappíra frá íslenska ríkinu að ég sé tryggð hér og þurfi ekki að greiða lækniskostnað ef eitthvað kemur fyrir mig í útlandinu og já ég þarf ekki visa ef ég kem heim innan 3ja mánaða og verð sem ferðamaður í Chile.. Búin að tékka á þessu :)
---
Sunnefa spurði mig um daginn hvað mig langaði að gera fyrir utan að vera með henni og súpa gott áfengi og hafa það næs.. jú jú litli græni Íslendingurinn ljóstraði upp gömlum draumi, hann langar að fara í dýragarð þar sem hægt er að ganga í gengum vatnstank með fiskum í... mig langar það :) En svo væri ég líka alveg til í að skoða borgina, fara kannski smá túristahring eða eitthvað. Bara eitthvað skemmtó. Alla vega er ég viss um að þessi ferð verður ógleymanleg sama hvað ég geri með henni Sunnefu minni.
---
Nú verð ég víst að halda áfram að vinna, nóg að gera þessa dagana. Reyndar kemur fríið sér ágætlega, er orðinn svolítið þreytt á þessari keyrslu svo það verður gott að fá smá frí. En þangað til, njótið lífsins og hafið það gott :)
þriðjudagur, júní 27, 2006
X- Ásdís listinn
(x) drukkið áfengi
( ) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl (foreldranna)
(x) verið ástfangin
(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu
( ) faðmað einhvern ókunnugann- alla vega man ég ekki til þess :)
( ) verið rekin/n
(x) lent í slagsmálum
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum- ég var sko stillt stelpa
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólanum- það þótt töff í gaggó... og svo gat ég ekkert í leikfimi :)
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi- ekki alveg...
(x) borðað sushi- með Sigga sushi á Flórida
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði (sem sagt í snjó)- ætlaði aldrei að komast upp með lyftunnu, hætti snemma í skíðabransanum
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu- er ekki bara stórhættulegt fólk á netinu?
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna- skottan mín er allt
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik" (dress up)- meira að segja til á mynd :)
(x) hoppað í laufblaðahrúgu
(x) rennt þér á sleða
(x) grátið svo mikið að þér finnst þú aldrei ætla að hætta
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum- aldrei í vinnunni!
( ) notað falsað skilríki
(x) horft á sólarlagið
(x) fundið jarðskjálfta
( ) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
( ) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru ..
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi- það var gult en skýrslan segir rautt- var aldrei sátt við það
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(x) lent í bílslysi
( ) verið með spangir/góm- vá hvað mig langaði í svoleiðis, mér fannst beislið hennar Jóhönnu frænku þvílíkt flott
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
( ) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið deja vu
(x) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
(x) verið vitni að glæp- samt engu alvarlegu þannig
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
(x verið gagntekin/n af post-it miðum- digital post- it er náttla bara snilld
( ) leikið þér berfætt/ur í drullunni
( ) verið týnd/ur
(x) synt í sjónum
( ) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
( ) farið í löggu og bófa leik
(x) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí- er SingStar ekki nútíma karaókí?
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini- ég veit ekki einu sinni hvað mistilteinn er?
( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
(x) kveikt bál á ströndinni- kveikti það nú ekki sjálf :)
(x) komið óboðinn í partý- var ömurleg partýflenna á gaggóárunum
(x) verið beðinn um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðinn í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta- slétta stéttin við Reykjalund brást ekki
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk- never ever... myndi deyja á leiðinni niður
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir á þig
Er ég lífsreynd??? ekki miðað við þetta..
þriðjudagur, júní 20, 2006
Chile....
Jamms, spádómurinn rættist hjá spákonunni. 10.júlí leggja Nonni og María af stað í langferð norður í land. Þau verða í sumarbústað á Melgerðismelum og Nonni ætlar að taka þátt í golfmóti. Á meðan hann er að keppa fær skottan að vera hjá Völlu- takk elsku Valla mín. Kossar og knús til þín...
---
Á meðan þau fara í langferðina sína fer ég í enn lengri ferð... alla leið til Chile. Ég fer af stað héðan að morgni 10.júlí og verð komin til Chile 11.júli. Áætluð heimkoma er svo seint á sunnudagskvöldi 23.júlí. Ég er að farast úr spenningi... Hlakka til að sjá þig Sunnefa mín :)
laugardagur, júní 17, 2006
17.júní.. ein í Odda að vinna :(
Hæ hó jibbí jey það er kominn 17.júní.... Núna sit ég upp á 3. hæð við skrifborðið mitt í Odda að reyna að vinna. Það er ansi erfitt á svona dögum, mig langaði miklu frekar að skottast um í bænum með prinsessunni minni, kaupa sleikjó, candy floss og svoleiðis fjör. En hún er með pabba sínum núna. Reyndar er sennilega mjög gaman hjá henni, þau fóru og sóttu Önnu Maríu og fóru svo öll saman í skrúðgöngu í Hafnarfirði með Ingu og co.
Ég reyni að hugga mig við það að ég fæ góðan tíma með henni í sumarfríinu, reyndar ætla ég að reyna í næstu viku að vinna meira heima á kvöldin og sækja hana þá klukkan 16 í staðinn fyrir 17 á leikskólann. Þá fáum við smá tíma til að gera eitthvað skemmtilegt, ég var að spá í því um daginn að ég hef ekki farið með henni í neinn einasta hjólatúr síðan hún fékk nýja hjólið- við sem vorum alltaf úti að hjóla í fyrrasumar, reyndar held ég að veðrið spili þar inn í líka en tímaleysi líka.
Hún verður komin í sumarfrí eftir 3 vikur, þá fer hún sennilega í viku með pabba sínum í sumarbústað en fyrstu helgina í sumarfríinu ætlar hún að vera með mér í útilegu. Sigrún er að koma heim með strákana og við frænkurnar ætlum að hittast í útilegu allar saman. Um verslunarmannahelgina bíst ég svo við því að fara með hana á Ísafjörð og í einhverja ferð yfir í Jökulfirði þar sem snædd verður kjötsúpa- mamma og Siggi fóru í fyrra og fannst rosalega gaman. Það er líka svo langt síðan ég hef komið á Ísafjörð, keyrði þar í gegn um páskana 2000 í tómu tjóni en ég held að ég hafi ekki komið þangað að neinu viti síðan Jóhanna varð stúdent. Þá keyrði ég vestur með Dóru og Óla í Yarisnum hennar Dóru :)
Iss, það er svo langt síðan ég hef bloggð að ég gleymi að segja ykkur fréttirnar- ég komst inn í diplomanámið í náms-og starfsráðgjöf- námið sem mér og fleirum var svo skemmtilega hafnað inngöngu í fyrra. Þannig að vorið 2009 ætla ég að útskrifast með diploma í náms- og starfsráðgjöf sem veitir mér starfsréttindi á því sviði og með MA gráðu í Fötlunarfræði. MA námið ætla ég reyndar að klára árið áður, en útskrifast úr því saman. Fá smá egobúst að útskrifast með tvær gráður í einu :)
Annars er bara ekkert að frétta þannig séð, ég bíð spennt eftir því að sjá hvort spádómur Spákonunnar rætist- segi ykkur nánar frá því seinna ef það rætist. Á eftir að spjalla við eina góða konu áður... Valla mín, ég hringi þegar þú ert orðin hress eftir stúdentsafmælið! Annars bara over and out
miðvikudagur, júní 14, 2006
Endalaust óheppin
Hvernig er þetta hægt?
Föstudagur
Bíllinn fær endurskoðun- stýrisendi og einhver blessuð spyrna farin
Mánudagur
Sef yfir mig í vinnuna á mánudagsmorguninn, vakna kl. 8.50... á að mæta kl. 9.00
Gleymi tölvunni heima og dagbókinni minni en ég þurfti að nota báða hluti í vinnunni kl. 13
Kem með tölvuna í skólann, kveiki á henni og hún deyr
Rafhlaðan í tölvunni ónýt og EJS er hætt að selja þær þar sem tölvan er alveg að verða 3ja ára
Mæli mér mót við konu kl. 16.30, bíð eftir henni til 16.45 og fer. Missti af skilaboðum um að henni seinkaði
Þriðjudagur
Fer og kaupi mér nýja tölvu- faxið bilar hjá bankanum þannig að reikningurinn fyrir tölvunni kemst ekki til þeirra
Reyni að tengja routerinn við tölvuna en ekkert gengur
Miðvikudagur
Sef yfir mig í vinnuna, næ samt að mæta á réttum tíma
Gengur ekkert að tengja HI póstinn við outlookið í nýju tölvunni- tvö símtöl við notendaþjónustu RHI duga ekki og ég fer á staðinn. Stafarugl hjá mér í outgoing server var málið :)
Fer í búð og versla í matinn, daman vildi orafiskibollur. Kem heim og ætla að skella kartöflum í pott- ekki til!
Held áfram að tengja routerinn, ekkert gengur. Með einu mjög stuttu símtali er ég látin lesa aftan á routerinn ADSL Modem Router... en ég er ekki með ADSL heldur en einhverja kapaltengingu
Hvernig verða næstu dagar?
sunnudagur, maí 21, 2006
...
Ja hérna hér, aldeilis langt síðan síðast. Ég er búin í prófunum og farin af stað í vinnunni en annars hafa aðrir hlutir breytt aðeins plönum mínum og hvatt mig til að hugsa vel um lífið og tilveruna. Hún elskulega amma mín kvaddi þennan heim fyrir rúmri viku. Ég sakna hennar rosalega mikið og hef mikið hugsað til hennar undanfarið. Ég er svo ótrúlega heppin að hafa átt hana fyrir ömmu, án hennar væri ég ekki sú sem ég er. Hún var alltaf svo góð, ég held að það hafi ekki verið til neinn með stærra hjarta eða bara yndislegri. Ég átti bestu ömmu í heimi.
föstudagur, maí 05, 2006
Brilliant lag
Íslensk þýðing á You´re beautiful.....
http://www.sigurjon.com/mp3/BrynjarMar-YourBeautiful.mp3
Ég meig næstum því á mig :)
fimmtudagur, maí 04, 2006
Blessað málfarið :)
Vínbúðin Garðabæ óskar eftir starfsfólki til að vinna alla virka daga, einnig fimmtudaga og föstudaga....
Síðast þegar ég vissi tilheyrðu fimmtudagar og föstudagar virkum dögum, er ég eitthvað að rugla? Eða er þetta svona þegar maður er að djúsa, eru þá virku dagarnir bara 3? Sá þessa auglýsingu á töflu í Odda...
þriðjudagur, maí 02, 2006
Ógó sniðugt
1. Aldrei í lífi mínu: mun ég kjósa Sjálfstæðisflokkinn!
2. Þegar ég var fimm ára: átti ég heima á Blönduósi- mekka sveitarfólksins
3. Menntaskóla árin voru: bara nokkuð fín... Kynnist henni Helgu minni fyrsta skóladaginn. Við áttum frábærar stundir í hálkunni eða í Gullnesti :)
4. Ég hitti einu sinni: Pétur Jóhann Sigfússon á Húðlæknastöðinni- ég var alveg pottþétt á því að þetta væri falin myndavél eða eitthvað. Guttinn var bara að fara til doksa eins og ég
5. Einu sinni þegar ég var á bar: varð ég of drukkkin- bara einu sinni
6. Síðastliðna nótt: horfði ég á sjónvarpið þar til ég sofnaði og svaf í sófanum til 6 í morgun...
7. Næsta skipti sem ég fer í kirkju: verður af gefnu tilefni
8. Þegar ég sný hausnum til vinstri sé ég: skrítið fólk að læra með ipodinn á fullu
9. Þegar ég sný hausnum til hægri sé ég: fleira skírtið fólk sem er líka að læra, ein er meira að segja í kínaskóm
10.Þegar ég verð gömul/gamall: ætla ég að njóta þess að vera til
11. Um þetta leyti á næsta ári: verð ég að læra fyrir próf, vonandi í náms- og starfsráðgjöf
12. Betra nafn fyrir mig væri: Sigríður
13. Ég á erfitt með að skilja: marga hluti, suma langar mig ekki einu sinni að skilja
14. Þú veist mér líkar vel við þig ef: ég tala við þig aftur
15. Fyrsta manneskjan til að eignast barn í þínum vinahóp væri: Iss, old news- síðust væri meira inn, þá skýt ég á Guðrúnu eða Sunnefu.
16. Farðu eftir ráðum mínum: ef þig langar, en passaðu þig ég get verið viðbjóðslega stjórnsöm ef ég er í essinu mínu
17. Uppáhalds morgunmaturinn minn er: Coca Cola... með smá nikótíni
18. Afhverju myndir þú hata mig: því þú gerðir mér eitthvað sem ekki er hægt að fyrirgefa
19. Ég myndi stoppa mitt eigið brúðkaup ef: heimstyrjöld myndi bresta á
20. Heimurinn mætti alveg vera án: fíkniefna, lélegra foreldra, mannkynbóta, misréttis....
21. Ég myndi frekar sleikja svínsrass en að: kjósa Sjálfstæðisflokkinn.
22. Bréfaklemmur eru nytsamlegri en: heftari.
23. Ef ég geri e-ð vel, er það: Mjög vel gert.
24. Myndir sem þú fellir tár yfir eru: Fer nú eftir því hvernig liggur á mér... Labama kallar alltaf fram tár- sætar og sorglegar myndir eru my thing
mánudagur, maí 01, 2006
Sælan búin- heimapróf tekið við
Ég átti alveg frábært afmæli- ég bara man ekki eftir því hvenær það var svona gaman á afmælinu mínu síðast!
---
Nonni kom um morguninn og hann og María vöktu mig með afmælisgjöfum og morgunmat. María gaf mér gullhring með áletruninni Mamma 25 ára - bara æði. Svo gaf Nonni mér gjafakort í svaka dekur í Baðhúsinu og pening til að kaupa föt fyrir 2. í afmæli.
---
Svo hitti ég Hildi á Hressó til að læra, þar fékk ég afmæliskók með eyrum og franskar þar sem búið var að skrifa Happy Birthday. James stóð alveg fyrir sínu og skemmti okkur í tilefni afmælisins, verst hann er að hætta kappinn- ætlar í sveitina og vinna á háklassahóteli.
---
Svo var það fyrirlestur hjá GG um orðræðugreiningu á uppeldishandbókum, fyrirlesturinn gekk svona langt framar vonum og GG var bara ánægð með hann- ég er ekki að grínast, ég held hún hafi verið ánægð.
---
Svo fór ég í búðina ti að versla í matinn, sjálfan afmælismatinn. Ég keypti bleikt veislukjöt eftir pöntun prinsessunnar minnar. Anna Maja kom og borðaði með okkur og svo passaði hún skvísuna fyrir mig um kvöldið. Maturinn var æði, við að sjálfsögðu átum á okkur gat eins og venja er. Það er alveg æði að bjóða Önnu Maju í mat, henni finnst alveg jafn gaman og mér að borða góðan mat.
---
Eftir matinn fór ég á fund á leikskólanum- sá var ekki skemmtilegur nema að því leyti að ég er enn ákveðnari í að taka Maríu af leikskólanum í haust. FS tekur við rekstrinum 1. september og þá gjörbreytist allt en ég nenni ekki að ræða það hér :) Eftir fundinn fór ég og hitti Elínu og Hildi á Hressó- bara í smá kaffi hélt ég. En þegar ég kom var Ingunn komin líka og ég fékk kveðjur frá Kollu og Maríu sem komust ekki. Skvísunar voru búnar að láta taka frá borð fyrir okkur og panta súkkulaðiköku með kertum og páskaunga, svo var búið að skrifa á kökuna: Ásdís 25 ára. Elín gaf mér káflaskinn sem hún ætlar að sauma handa mér tösku úr- mig er búið að dreyma lengi um svona skinntösku :) Skemmtileg kvöld sem kom skemmtilega á óvart- takk stelpur mínar!
---
Föstudagurinn var svo annar í afmæli. Ég byrjaði daginn á Vorhátíð leikskólans þar sem skotta mín var með söngatriði með hópnum sínum. Þau sungu indjánalagið- ferlega sætt. Svo fór ég þaðan í Baðhúsið í smá dekur- ég hafði ekki tíma fyrir allt dekrið sem ég átti inni svo að ég fór bara í litun, plokkun, augnmaska og lúxusandlitsbað- geðveikt!
---
Svo lá leið mín í Kringluna til að kaupa föt fyrir kvöldið. Það gekk nú ekki eins og ég hafði vonast til- helvítis kíló skemma alltaf allt :) En ég sjoppaði samt buxur, jakka og bol. Svo brunaði ég heim til að fínpússa mig fyrir kvöldið.
---
Svo komu Maja og Beggi að sækja mig því við vorum að fara út að borða með mömmu og Sigga. Við fórum á Lækjarbrekku- forrétturinn og afmælidesertinn voru æði, kjötið aðeins síðra en kvöldið alveg frábært. Við sátum og spjölluð langt fram eftir um allt og ekkert. Rifjuðum upp gamla dag og Beggi tók okkur Maju í nefnið á spjalli við nossara- sænskan hans kom honum vel. Nossararnir sögðust vera olíubarónar í leit að olíu á Íslandi því nú væri sko tíminn til að græða :)
---
Ég var komin heim um eittleytið eftir frábæran dag. Takk allir fyrir að gera dagana svona skemmtilega og eftirminnilega- knús og kossar. En núna á ég að vera í heimaprófi- held áfram við það eftir smá stund :)
fimmtudagur, apríl 27, 2006
laugardagur, apríl 22, 2006
Fullkomin eiginkona
Hvernig skal sú kona vera,
sem karli þarf til hæfis að gera.
Hún þarf að vera undurfríð,
og karli ávalt blíð.
Með matinn alltaf á réttum tíma,
og eigi sitja og hanga í síma.
Skyrtan strokin inni í skáp,
og ekkert óþarfa búðarráp.
Að baka konan þarf að kunna,
og haga sér eins og nunna.
Börn skal konan manni sínum ala,
og ekki yfir íþróttum tala.
Karlinum þarf hún sífelt að hæla,
og á kvöldin við hann gæla.
Konan skal halda vextinum fínum,
þó karlinn tapi sínum.
Karlinn á að styðja í framapoti,
og ekki vekja úr fyllerísroti.
Heimilið skal vera strokið og fínt,
svo karlinn geti það öðrum sýnt.
Konan skal kunna að negla og saga,
svo ekki hún þurfi karlinn að plaga.
Garðinn að hreinsa og bílinn að bóna,
og bursta af karlinum skóna.
Svo skal hún vera sæt og fín,
svo karlinum glepjist ekki sýn.
En ef hann rær á önnur mið,
skal konan halda frið.
Þá vitið þið það eflaust nú,
að vandi er að vera frú.
Ég held að það eigi bara ekkert einasta við mig hérna enda á ég ekki kall í dag... ég myndi frekar kalla þetta gólfmóttu en fullkomna eiginkonu, öss öss!
Gerast áskrifandi að:
Færslur (Atom)