miðvikudagur, október 05, 2005

I´m so happy!

Ég er að springa, þetta er allt að koma! Ég er langt á undan áætlun og núna á ég bara eftir Inngang, Lokaorð og Útdrátt....nenenenne. Ég ætla að skila JTJ handriti annað kvöld og svo á pakkinn að fara í prentun á mánudag ef allt gengur svo vel áfram.
Núna finnst mér þetta gaman, loksins þegar ég sé fyrir endann á þessu. Reyndar er hún alltof löng en ég get ekki stytt hana meira, og gamli setti ekkert út á lengdina síðast. Hún endar sennilega í 20 þús orðum, en ég veit um lengri ritgerð svo að ég er bara sátt.
Ég var að fá tilboð um að blanda mér í pólitík, þið sem þekkið mig vitið að mér finnst svoleiðs ýkt skemmtó. Ef ég þigg boðið fæ ég sæti ofarlega á lista fyrir næstu kosningar, spennandi :) En tíminn, ég veit ekki hvort ég á svoleiðis eftir fyrir eitthvað svona. Ég ætla reyndar að vera minna í skólanum eftir áramót, er bara skráð í 10 einingar... kannski breyti ég því eitthvað, aldrei að vita. Ég ætla alla vega að pæla í þessu...
Skottan mín getur ekki beðið eftir því að það komi föstudagur, þá er starfsdagur á leikskólanum og ég ætla að vera heima með henni. Við María þurfum reyndar að vinna verkefni en við reddum því heima hjá snúllunni. Hún var voðalega óheppin eitthvað í gær, datt á leikskólanum og sprengdi vörina, svo datt hún úr rúminu okkar í svefni og fékk stóra kúlu á höfuðið. Í takt við lífið síðustu daga faðmaði hún pabba sinn og vildi lítið við múttuna ræða, en þetta lagast.

5 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Sko ég sagði þér þetta! Þú getur allt :)
Knúsaðu nú litlu skvísuna frá mér - leiðinlegt að meiða sig svona...

Nafnlaus sagði...

Djö... er ég ánægð með þig! bara allt að smella hjá þér!! GÓÐ!
Við skulum hafa eitt á hreinu ég er í tíma og það er héraðsdómslögmaður að kenna mér sem er fæddur 1979!!! eigum við eitthvað að ræða þetta???
hehe

Ásdís Ýr sagði...

Jeminn, kennararnir mínir eru allir fæddir fyrir miðja öldina :)

Nafnlaus sagði...

Þú ert svo ótrúlega dugleg!!! Verður alveg æði þegar þú skilar þessu frá þér :)

Nafnlaus sagði...

u go girl! :)