sunnudagur, október 22, 2006

Nenna óskast!

25 ára einstæð móðir/háskólanemi í Vesturbænum óskar eftir nennu á viðráðanlegu verði. Nennan þarf að gera það að verkum að einstaklingurinn öðlist drifkraft og áhuga á núverandi námi og sinni því af heillindum og alúð. Tekið er á móti umsóknum í athugasemdnum, umsóknir þurfa að uppfylla almenn skilyrði um röklega framsetningu og bera vott um metnað. Með ósk um skjót viðbrögð Ásdís Nennulausa

3 ummæli:

Nafnlaus sagði...

Er ástandið á bænum bara svona!
Ég myndi sko alveg gefa þér nennu ef ég ætti...

Nafnlaus sagði...

Hey ég á eina nennu sem ég er til í að selja á viðráðanlegu verði. Jafnvel bara á hálfvirði því nennan er ekki alveg 100%. Þetta er þó gömul nenna- frá mér sjálfri- en ég hef ekkert með hana ða gera, svo þú mátt kaupa hana. Vona bara að hún nýtist þér betur en hún hefur nýst mér.

Nafnlaus sagði...

láttu mig vita ef þú finnur nennu á góðu verði. Vantar smá svoleiðis líka...